Kanntu þetta?

Trúarjátningin:
Ég trúi á Guð, föður almáttugan, skapara himins og jarðar.
Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottinn vorn,
sem getinn er af heilögum anda,
fæddur af Maríu mey,
píndur á dögum Pontíusar Pílatusar,
krossfestur, dáinn og grafinn,
steig niður til heljar,
reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum,
steig upp til himna,
situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs
og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.
Ég trúi á heilagan anda, heilaga almenna kirkju,
samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna,
upprisu holdsins og eilíft líf.

Faðir vor:
Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Og fyrirgef oss vorar skuldir
svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.
Eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen.

Skírnarskipunin:
,,Allt vald er mér gefið á himni og jörðu.
Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum,
skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda,
og kennið þeim að halda allt það sem ég hefi boðið yður.
Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.’’

Blessunarorðin:
Drottinn blessi þig og varðveiti þig.
Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur.
Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið. Amen.

Signingin:
Í nafni Guðs, föður og sonar og heilags anda. Amen.

Gullna reglan:
„Allt sem þér viljið,
að aðrir menn gjöri yður,
það skuluð þér og þeim gjöra.“

Sæluboðin:
Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.
Sælir eru sorgbitnir, því að þeir munu huggaðir verða.
Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa.
Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða.
Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða.
Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.
Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.
Sælir eru þeir, sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir, því að þeirra er himnaríki.
Sælir eruð þér, þá er menn smána yður, ofsækja og ljúga á yður öllu illu mín vegna.
Verið glaðir og fagnið, því að laun yðar eru mikil á himnum.
Þannig ofsóttu þeir spámennina, sem voru á undan yður.

Tvöfalda kærleiksboðorðið:
„Elska skalt þú Drottin, Guð þinn,
af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum.
Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“

Boðorðin tíu:
1. Ég er Drottinn Guð þinn. Þú skalt eigi aðra guði hafa.
2. Þú skalt eigi leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.
3. Halda skaltu hvíldardaginn heilagan.
4. Heiðra skaltu föður þinn og móður.
5. Þú skalt eigi mann deyða.
6. Þú skalt eigi drýgja hór.
7. Þú skalt eigi stela.
8. Þú skalt eigi bera ljúgvitni gegn náunga þínum.
9. Þú skalt eigi girnast hús náunga þíns.
10. Þú skalt eigi girnast konu náunga þíns, þjón, þernu, fénað né nokkuð það sem náungi þinn á.

Litla Biblían:
Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf einkason sinn,
til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.